Zelensky horfir um öxl og segir…

The Guardian segir frá því að Zelensky segi eitt og annað, um stríðið í Íran, Rússland og fleira.

Við erum orðin vön því að maðurinn segi ýmislegt og ekki er gott að segja um hvernig hefði farið fyrir okkur, ef við hefðum ekki getað notið leiðsagnar hans.

Hann segist vita hvernig Putin kemur að málum varðandi ófriðinn í Miðausturlöndum og veit það vafalaust betur en þeir sem í brasinu standa og setja má spurningarmerki við hvers vegna hann var ekki hafður með í ráðum!

,,Bandaríkin hafa hunsað trúverðugar sannanir fyrir því að Rússland hafi aðstoðað Íran við að ráðast á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum vegna þess að þau „treysta“ Vladímír Pútín“, að sögn Volodymyrs Zelenskyj, Úkraínuforseta.“

Þetta segir maðurinn og gerir lítið úr trúverðugleika þeirra sem bandarísk yfirvöld styðjast við.

Hvers vegna spurðu menn ekki manninn um hvað þeir ættu að gera?

Mann sem veit meira en flestir aðrir og ekki síst að allt illt er frá Putin komið!?

Málið er einfalt ef trúa má forsetanum og satt að segja undarlegt að hann skuli ekki hafður með í ráðum um þetta, því hann ,,veit“ eitt og annað sem enginn veit nema hann og við sjáum að eftir á veit hann enn meira en flestir aðrir!

Svo rætt sé um málin af alvöru, þá er framferði Bandaríkjanna í Miðausturlöndum alls ekki neitt til að grínast með og Zelensky er ekki að grínast, því hann veit og hann einn veit og við hin vitum ekki neitt …, eða að minnsta kosti minna en hann!

Við skulum vona að Trump fylgist með umræðunni, sem við efumst reyndar um, því ýmislegt bendir til að bæði hann og Úkraíninn viti minna en þeir vilja láta í veðri vaka.

Að haltur fari að leiða blindan á þessum síðustu tímum er ekki það sem við þ.urfum á að halda!

Færðu inn athugasemd