Styrjöld í aðsigi?

Á BBC.COM er farið yfir það sem er í uppsiglingu gagnvart Íran af hálfu Bandaríkjanna.

Það skal tekið fram að ritari er ekki aðdáandi íranska klerkaveldisins og reyndar ekki heldur þess bandaríska, þ.e.a.s. þegar það tekur upp á að beita afli sínu gegn öðrum.

Sem hefur reyndar gengið misjafnlega, enda þjóðirnar af ýmsu tagi sem átt hefur verið við og dettur undirrituðu þá fyrst í hug Vietnam sem lagt var í rúst í þeim tilgangi að tryggja hagsmuni Bandaríkjanna, hvernig svo sem það var nú rökstutt, eða ekki rökstutt.

Nefna má Írak, þar sem Ísland var með í ,,hópi hinna viljugu þjóða“, eða hvað sem það var nú látið heita hjá snillingunum sem fóru með völdin í hinu íslenska stórveldi.

Bandaríkin hafa verið ,,viljug“ víðar og má m.a. nefna eitt dæmi um það nýjasta, þ.e. hugmyndina um að komast yfir Gasa og gera svæðið að letilífssvæði fyrir ríka vesturlandabúa, sem reyndar hefur ekki enn sem komið er náð fram að ganga, hvað sem því nú veldur.

Það virðist eitthvað ætla að dragast að svæðið verði gert að paradís hinna ríku, eins og forseti Bandaríkjanna sagðist vilja að það yrði.

,,Hann segir nú svo margt sá blessaði maður“ var orðatiltæki eins þeirra sem ritari hefur kynnst á lífsleiðinni, en sá sem það sagði, vildi að menn segðu minna og gerðu meira … til góðs.

Þeir tóku Venesúela fyrir skömmu og nú virðist sem ætlunin sé að ,,taka“ Íran en hvort það gengur eins vel vitum við ekki.

Sé mark takandi á fréttum þá er mat á mannslífum lágt í því ágæta landi og því gæti það hentað öðrum sem eru sama sinnis, en best væri að í Íran og reyndar víðar, kæmist á það sem kalla mætti eðlilegt ástand.

Færðu inn athugasemd