Friður?
Þeir eru komnir saman í Abú Dabi til að ræða frið í stríðinu sem verið hefur á milli Rússa og Úkraína og við vonum að viðræðurnar gangi vel.

Margir hafa látið lífið undanfarin ár vegna deilnanna sem verið hafa milli landanna og nú er svo að sjá sem Rússar fari ekki fram á annað en að það sem áður var, verði aftur að því sama þ.e. að svæðin sem áður voru ,,sjálfstjórnarsvæði“ verði það áfram.
Og ef Úkraínar gangi að því, að þá verði íbúarnir á svæðinu látnir í friði og Úkraínar haldi sig á sínu landi.
Gera má ráð fyrir að þar geti hnífurinn staðið í vorri kú, því Úkraínar eru ekki tilbúnir að samþykkja slíka skilmála.
Hvað þeir setja sem skilmála fyrir friði er óljóst sem stendur, en af þeirra hálfu hefur stríðið staðið í tæp 20 ár.
Hver byrjaði og hvenær er reyndar ekki ljóst af þeirra hálfu en að minnsta kosti voru þeir að á fyrsta áratug aldarinnar og skutu varnarliðar á svæðinu þá niður hollenska farþegaþotu fyrir mistök.
Munu hafa talið hana vera herflugvél frá Úkraínu og ef til vill kunnu þeir ekki, eða gátu ekki, greint á milli flugvéla Úkraína og venjulegra farþegaþotna.
Vitaskuld var það hörmulegur atburður sem sýnir að stríðsátök til að jafna ágreining er afleit aðferð til að ná fram slíku markmiði.
Enn öllum þessum árum seinna er enn ekki búið að leysa málið og það er látlaust verið að limlesta og drepa fólk, fyrir nú utan alla eyðilegginguna sem átökunum fylgir.
Vonandi fara menn að ná áttum.

Færðu inn athugasemd