Að stjórna heiminum

Að undanförnu höfum við getað fylgst með nýjung í samskiptum þjóða, hvað varðar siglingar á höfum úti.

Það eru Bandaríkin sem ganga á undan með fordæmi í þessum nútímalega sjóræningjaleik og ef rétt er munað hafa þau rænt a.m.k. þremur skipum með manni og mús.

Auk þess hafa borist fréttir af, að forseti Bandaríkjanna hafi áhuga á að leggja undir sig Grænland, sem liggur snævi og jöklum hulið fyrir vestan okkur. 

Hvort löndin eru fleiri sem hinn bandaríski forseti ágirnist er ekki alveg á hreinu, en það gæti farið eftir því hvernig hann dreymir eða einhverju öðru s.s. því, hverju vitringurinn Musk hvíslar honum í eyra.

Allt væri þetta fyndið og gott efni í nýja kvikmynd af því tagi sem eitt sinn var sýnd í bíói sem var í húsi nokkru í Skipholti í Reykjavík.

Myndin var kölluð ,,Vitskert veröld“ í íslenskri þýðingu og þótti með betri myndum fyrir þau sem höfðu gaman af að hlægja að skringilegum uppákomum.

Enginn var drepinn í þeim leik og enginn var settur í hlekki eftir því sem við munum, eins og gert er í því nútímaskrípói sem við fylgjumst með af nokkurri furðu.

Færðu inn athugasemd