Sagt er frá hugmyndum úkraínskra stjórnvalda um endurgangsetningu kjarnorkuvers, á CNN.COM og spurningar vakna.
Hvað hefur gerst og hvað hefur breyst?
Við höfum fylgst með baráttunni um verið frá upphafi innrásar Rússa en snemma í þeirri atburðarás tóku þeir yfir umrætt orkuver.
Munum einnig eftir sendifulltrúum frá Sameinuðu þjóðunum sem fóru á vettvang til að fylgjast með því sem hafði verið og var að gerast.
Sáum fréttir af því að sendifulltrúunum ofbauð hvernig sprengjur frá Úkraínu höfðu fallið á brynju versins og fannst að telft væri á tæpasta vað hvað áhættu á geislaleka varðaði.
Varnarskjöldur yfir slíkum verum er ekki að ástæðulausu og undir honum eru kjarnaofnarnir en þennan varnaðbúnaði reyndi úkraínski herinn að sprengja niður.
Inni fyrir störfuðu rússneskir tæknimenn að því að halda verinu gangandi og til þess að það væri hægt, þurfti að losna við orkuna sem verið framleiddi, sem gekk illa vegna þess að Úkraínar rufu í sífellu raflínurnar frá verinu og það þó, það væru þeirra þjóðar fólk sem nýtti sér raforkuna.
Russya Today er með umfjjöllun um þessi mál og þar er rætt um sama kjarnorkuver og þar segir m.a.:
,,Verið er rekin af rússneskum kjarnorkusérfræðingum og er staðsett í Zaporozhye-héraði, sem gekk formlega til liðs við Rússland eftir þjóðaratkvæðagreiðslu haustið 2022. Kænugarður hefur neitað að viðurkenna niðurstöður atkvæðagreiðslunnar. Zelenskíj fullyrti á miðvikudag, að ef verksmiðjan yrði aftur undir stjórn Úkraínu – atburðarás sem Moskva sér ekki fyrir – gæti hún orðið arðbær eign innan 12 til 18 mánaða.„
Og meira um sama efni hér.
Ofangreindar staðreyndir vilja menn ekki horfast í augu við og ræða því um þær samkvæmt ímynduðum ,,veruleika“.
Vandamálið við rekstur versins var að Úkraínar vörpuðu sprengjum á orkulínurnar sem lágu frá verinu og höfnuðu því að nota raforku sem framleidd væri í því með rússneskum tæknimönnum!
Vildu sem sagt ekki rafmagn með rússnsesku bragði inn á sitt kerfi og það skipti engu máli varðanda þá afstöðu og ákvarðanatöku, að nýting raforkunnar gæti forðað kjarnorkuslysi!
Vildu sem sagt frekar hætta á ofhitnun versins með tilheyrandi ,,Chernobyl“ afleiðingum og reyndu að stuðla að kjarnorkuslysi eins og eftirlitsmenn frá Sameinuðu þjóðunum sáu ummerki um.

Færðu inn athugasemd