Skemmdarverkastarfsemi?

Á fréttavef Ríkisútvapsins var farið yfir feril hvalveiðimálsins, hvað varðar leyfisveitingu og aðdraganda hennar.

Það er Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. sem glímuna tekur við ráðherra frá Vinstri grænum.

Ýmislegt fróðlegt kemur fram og í inngangi að frásögninni er eftirfarandi:

,,Matvælaráðuneytið hafði vissar efasemdir um að útreikningar Hafrannsóknarstofnunar um veiðiþol á langreyðum væru í samræmi við ráðgjöf Alþjóðahvalveiðiráðsins. Forstjóri Hvals var reiður [yfir] hversu lengi ráðherra dró ákvörðun sína.“

Ráðherrann sem um ræðir, veitti heimild til veiðanna eftir að hafa legið yfir málinu í hálft ár, það er þann tíma sem hefði t.d. mátt nota til að gera skip og búnað klárann fyrir veiðarnar.

Það virðist vera fyrir utan skilning Vinstri- grænna, að atvinnutæki þurfi að gera hæf til notkunar áður en þau eru tekin til nota.

Það eitt og sér gefur talsverða innsýn í hve meðvituð þau eru um hvað þarf til, svo hægt sé að geta halda á veiðar.

Að undirbúa skipin og yfirfara ásamt því að gera Hvalstöðina klára er utan sviðsins sem þau virðast skynja.

Þau þurfa hálft ár til að hugsa og velta vöngum, en ætlast síðan til þess að fólkið sem kemur til með að vinna verkin, geti snarað sér í gallana og um borð, yfirfara búnað og tæki, kynt upp katla á augabragði og haldið til hafs.

Svona einfalt er málið vitanlega ekki og enginn með fullu viti fer í að leggja út fyrir þeim kostnaði sem fylgir úhaldinu, nema vita með góðum fyrirvara að leyfi verði veitt.

Sem vitanlega er mikið vafamál þegar afgreiðsla málsins er í höndum ráðherra frá Vg.

Það kom á daginn að það var rétt metið af stjórnendum Hvals hf.

Skemmdarverk var framið og:

Meðreiðarsveinar og meyjar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins sættu sig við framkomu ráðherrans, sem er síðan kapítuli út af fyrir sig.

(Ritara tókst ekki að finna umfjöllun Rúv aftur og því er ekki tengill tiltækur)

Færðu inn athugasemd