Svo er að sjá sem nýr útflutningsatvinnuvegur sé tekinn til starfa en þó er það ekki svo að um innlenda framleiðslu sé að ræða, heldur er það sem út er flutt afrakstur af afburðagóðri stjórnsýslu síðustu ára!

Fyrirsögnin hér að ofan er fengin úr Morgunblaðinu, þar sem sagt var frá hinum nýja ,,atvinnuvegi“ þjóðarinnar.
Atvinnuvegi sem gengur út á það, að flytja inn fólk og síðan flytja það út aftur þegar búið er að ,,nota“ það.
Í tíð núverandi ríkisstjórnar hefur landið verið opnað fyrir innflutningi á fólki frá löndum þar sem ekki er gott að búa og sjálfsagt hinum líka, að því eð virðist án þess að nokkuð sé að því gætt, ,,hvern mann“ viðkomandi persónur hafa að geyma.

Allt er þetta prýðisgott og eins og sjá má skapar það vinnu fyrir löggæslumenn, mótmælendur og ýmsa aðra og gefur því til viðbótar, flugrekstraraðilum nýjan tekjustofn til að styðjast við.
Nýlega var verið að flytja út tæplega sextíu manns og til að það hafi gengið eðlilega fyrir sig og til dæmis ekki endað með flugráni, hefur þurft að senda vel valda löggæslumenn með hópnum.
Hvort þetta er upphafið að því sem koma skal eða aðeins einskiptisaðgerð, vitum við ekki en reiknum frekar með að það fyrrnefnda verði ofan á, þar sem hinir vel upplýstu ráðherrar og ráðherrur finna það nær örugglega út, að allt muni þetta auka hagvöxtinn eftirsótta.
Ef kafað er aftur í tímann munum við eftir dæmi um rússneskan strák sem glímdi við augnsjúkdóm, sem menn fundu út á sínum tíma að yrði að skila til síns heima.
Við munum líka hvernig tekið var á móti gyðingum sem voru á flótta undan morðæði nasista á stríðsárunum, en það þótti hreint ekki gott að skotið yrði yfir þá skjólshúsi.
Nú er öldin önnur og því er það orðinn góður bissness, að reka flugvélar að hluta til á kostnað ríkisins en framlag þess, birtist sem greiðslur fyrir flutning á þessari nýju ,,útflutningsvöru“ þjóðarinnar.

Hvað eru tréflísar í hafi, hjá því að geta elft flugrekstur bæði með innflutningi fólks og síðan útflutningi á því aftur.
(Myndir eru fengnar úr Morgunblaðinu og Heimildinni)

Færðu inn athugasemd