Dýralíf og mannlíf

Við svipumst um og sjáum að það hefur ýmislegt verið að gerast og það er því full ástæða til að líta í kringum sig.
Svo dæmi sé tekið, þá setti hinn hinn nýi forsætisráðherra okkar undir sig betri fótinn og skrapp til Afríku.

Honum hlotnaðist sú náð, að fá að ganga á rauðum dregli en missti af Tarsan og félögum enda þau öll löngu horfin af sviðinu. Þó er aldrei að vita nema hann hafi fundið ,,týndu borgina“ á flandri sínu suður þar!

Við sem ekki erum á flandri með Bjarna, fylgjumst með baráttu fólks sem sækist eftir því að verða forseti þjóðar sinnar. Margir eru í framboði en aðeins einn verður fyrir valinu og til að sjá og heyra í þeim sem vænlegastur er, var farið ,,á“ Sviðið í MIðbænum á Selfossi. Skemmst er frá því að segja að Halla Hrund sá kom og sigraði með glæsilegri framkomu og málefalegri kynningu.

Annars er það helst til tíðinda, að veður á þessu vori hefur valdið farfuglum vanda sem þeir hafa leyst með því, svo dæmi sé tekið, að setjast að á túnum bænda í von um að finna sér þar eitthvað til næringar.
Þegar þetta er ritað er sem breytingar séu að verða á veðri, bændum, fuglum og búfénaði til hagsbóta og þar með þjóðinni allri að sjálfsögðu.
Við treystum því að þær breytingar gerist öllum til hagsbóta og erum búin að ákveða að taka niðurstöðu kosninganna, hvort sem hún verður súr eða sæt!

Færðu inn athugasemd