Flugvallarsmiðirnir snjöllu og gróðursetningin mislukkaða

Menn eru ekki á eitt sáttir um flugvöllinn í Vatnsmýrinni. Flest er tínt til til að færa rök fyrir því að hann verði að vera þar og hvergi annarstaðar. Hugmyndir hafa komið fram um aðra staðsetningu og ef einver slík er nefnd rísa upp framsóknarmenn ýmissa flokka og finna hugmyndinni allt til foráttu. 

Þau sem búið hafa í grennd við völlinn, vita hve illa lukkuð staðsetningin er, enda hefði það merkilegt verið ef það sem gert var í bráðræðiskasti á stríðstíma, hefði verið djúpt hugsað og vegið og metið líkt og nú er gert.

Reyndar það svo, að japl, jaml og fuður, þar sem menn snúast út og suður og sem tekur hátt í þann tíma sem framkvæmdirnar síðan taka í sumum tilfellum, að þá er lukkan síst meiri.

Við sjáum síðan á undirfyrirsögnum að vandinn er mikill og best er að gera ekki neitt, sem er sama niðurstaða og sá komst að, sem ekki vildi fram úr að morgni, af ótta við að ef hann svo gerði, að þá myndi henda hann eitthvað illt! 

Lífið er flókið og snúið og tilveran líka og nú er staðið frammi fyrir því, að þau undur gerðust fyrir um áttatíu áratugum, að flugvélajárnunum var fundinn hinn eini rétti staður af öllum stöðum. 

Svona geta menn nú verið glöggir ef breskir eru! 

Þeir voru ekki eins glöggir Selfyssingarnir sem plöntuðu tjám milli akreina fyrir nokkrum árartugum s.s. sjá má hér fyri neðan!

Fréttin birtist í Morgunblaðinu fyrir nokkru og varð til þess að það rifjaðist upp fyrir ritara hve ánægður hann varð, að sjá það sem verið var að gera á Selfossi til fegrunar bæjarins, þegar trén voru gróðursett. 

Það var komin nótt þegar það var og ég hafði ekki séð landið mitt um nokkuð langan tíma, hafði verið að reyna að vinna fyrir mér með vélstjórn á flutningaskipi, sem verið hafði að nokkru leiti með verkefni erlendis. 

Nú lá leiðin heim til konu og barna og við blasti framtak sem mér leist vel á, en árin liðu og í ljós kom að það sem þótti gott þá, hafði galla þegar fram í sótti og ef til vill voru trén ekki réttrar gerðar. Það hefur blasað við um nokkurn tíma og því er nauðsynlegt að þau fari. 

Færðu inn athugasemd