febrúar 2024

  • Laginn í … gogg! Þetta er ótrúleg lagni og gott að hafa yfir henni að ráða þegar ,,dregin er björg í bú“! Textinn undir myndinni, sem er úr Morgunblaðinu, er fróðlegur og vel þess virði, fyrir áhugasama, að lesa.

  • Það hefur verið í fréttum, að forseti Frakklands útilokaði ekki að senda franska hermenn til Úkraínu. Umfjöllun um málið finnst á ýmsum miðlum svo sem The Guardian, Russya today og Morgunblaðinu. Sjálfsagt mun umfjöllun finnast víðar og fram kemur að ,,sjálfboðaliðar“ af ýmsu þjóðerni eru þegar til staðar í Úkraínu. Sé það rétt eftir haft,…

  • Að þessu sinni eru myndirnar tvær og það er íslenska sauðkindin sem við sjáum. Kindin hefur fylgt þjóðinni frá landnámi, líkt og hesturinn, kýrin, geitin, hænsnin, hundurinn og kötturinn. Og allt er þetta í eintölu eins og við sjáum og hvort þetta hefur allt komið með fyrstu landnámsmönnunum, veit a.m.k. ekki sá sem þetta ritar,…

  • Zelensky ,,vinur“ okkar Íslendinga segir eitt og annað í viðtali við CNN.COM. Það fyrsta er, að hann segir Trump ekki skilja Putin, vegna þess að hann hafi aldrei tekist á við hann. Þarna skýst glöggum, því það er einmitt það sem Trump gerði á sínum tíma og báðir komu sælir og glaðir af þeim fundi!…

  • Álft á Reykjavíkurtjörn, mynd úr Morgunblaðinu.Álftin lætur litadýrðina ekki trufla sig við fæðuöflunina og veit kannski sem er, að um er að ræða speglun.

  • Það er ekki gott að búa til eitthvað úr engu. Viðtal Heimildarinnr við Oddnýju Harðardóttur. Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar mun hafa rætt, m.a. stöðu útlendingamála í einhverjum þætti fyrir nokkrum dögum. Vegna þess sem hún á að hafa sagt þar hefur orðið nokkur pólitískur nasablástur, einkum til hægri í samfélaginu og því jafnvel verið haldið…

  • Hm, hvert er ég komin?

  • Hjá Bændasamtökunum er ýmislegt að gerast eins og svo oft áður og félagar í samtökunum þurfa að kjósa sér formann. Sitjandi formaður gefur kost á sér til endurkjörs, hefur verið farsæll í starfi og náð að sameina samtök bænda. Bændur í landinu eru alla vega, þeir fást við margvíslegan búskap, en það er kjötframleiðslan sem…

  • Það er gott að eiga góða vini sem fylgjast með öllu, ekki síst þegar maður er svona lítil.

  • Í Bændablaðinu sem kom út þann 22/2/2024 er margvíslegt efni. Þar er ótalmargt sem fjallað er um og t.d. er þar sagt frá því, að hið meinta frelsi í viðskiptum með landbúnaðarvörur, sé ekki allt þar sem það er séð og kemur það ekki á óvart.  Skoðun leiðir nefnilega í ljós, að þrátt fyrir að tollar hafi verið…