24. desember 2023

Það er kominn aðfangadagur jóla!

Ritari þessarar síðu óskar öllum sem hafa haft nennu til að fylgjast með henni, sem og öðrum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Á Heimildinni sjáum við þessa fallegu og jólalegu mynd af Skólavörðustígnum í Reykjavík. Borginni sem ritara er alltaf kær, síðan hann naut seinni hluta barnæsku sinnar þar og þá að mestu í miðbænum og síðar seinna í austurhlutanum er hann stundaði nám í vélfræði í Vélskóla Íslands.

Í Morgunblaðinu, sem er það eina sem eftir lifir af þeim blöðum sem ritari seldi sem strákur í samkeppni við Óla ,,blaðakóng“ og sem kemur út flesta daga vikunnar prentað á pappír, sjáum við grindvíska drengi sem eru að púsla.

Þeir eru jólalegir strákarnir og reyna að njóta lífsins þó aðstæður séu þannig, að þeir geta ekki verið heima hjá sér um jólin.

Við óskum þeim alls hins besta og vonum að þeir og aðrir Grindvíkingar geti notið hátíðarinnar þó aðstæður þeirra séu ekki eins og allir hefðu kosið að þær væru eins og áður sagði.

Þar fyrir neðan er kjötkrókur til vinstri og elsti Íslendingurinn til hægri, en þar á milli er sagt frá því að kraftrnir sem í Jörðinni búa séu að ,,hlaða í annað gos“.

Við vonum það besta.

Bestu óskir um gleðilega hátíð og gæfuríkt komandi ár!

Færðu inn athugasemd