Svo sem kunnugt er hafa gaslagnir verið rofnar milli Rússlands og vestur Evrópu.
Í grein sem sjá má á miðlinum Russya Today rt.com er sagt frá því hvernig innflutningurinn hefur verið að aukast að undanförnu.
Bandaríkin hafa legið undir grun hvað varðar skemmdir á Nord Strem lögnunum, en illa hafur gengið að fá fram sannanir. Úkraínar hafa einnig legið undir grun, en eins og með hið fyrrnefnda eru sannanir ekki fyrir hendi.

Þegar búið er að eyðileggja lagnir, þarf að grípa til þeirra ráða að flytja gasið með skipum og eins og við sjáum er gasið haft í tönkum og kælt niður þannig að það sé fljótandi.
Hvernig þessi aukni innflutningur kemur til með að leggjast í Úkraína og bestu vini þeirra mun væntanlega koma í ljós fljótlega, þ.e.a.s. ef fréttirnar reynast sannar.
Annars er það svo, að fátt heyrist orðið í fréttum af Zelensky og því bræðralagi öllu, því hörmungarnar í Palestínu yfirgnæfa allt nú um stundir, en gera má ráð fyrir að stríðinu sé ekki lokið.

Færðu inn athugasemd