Að fá að vera og fá ekki að vera

Ungur maður frá Gana sem verið hafði hér á landi um sex ára skeið, fór úr landi í fylgd lögreglumanna.

Um þetta hefur verið talsverð umfjöllun í fjölmiðlum, þ.e.a.s. um aðdragandann að komu hans til landsins, veruna hér og síðan brottflutning til heimalandsins, eftir margra ára dvöl hérlendis.

Eftir því sem fréttst hefur er hann vel liðinn meðal félaga sinna og hefur getið sér góðan orstír sem starfsmaður hjá íþróttafélaginu Þrótti.

Í umfjöllun mbl.is kemur fram: ,,Kwateng er fædd­ur í út­hverfi borg­ar­inn­ar Ayera­bi í Aust­ur-Gana. Er hann krist­inn­ar trú­ar og til­heyr­ir ætt­bálk­in­um Achem. Greindi hann frá áreiti er hann varð fyr­ir í des­em­ber 2016 er hann pre­dikaði kristna trú ásamt vini sín­um. Lögðu þeir vin­irn­ir þar áherslu á að sam­kyn­hneigð væri óboðleg inn­an krist­inn­ar trú­ar og skyldi sam­fé­lagið því hafna þeirri hneigð.“

Ennfremur segir þar, að hann og félagi hans hafi orðið fyrir áreiti er þeir prédikuðu kristna trú, en þeir voru þeirrar skoðunar að samkynhneigð samræmdist ekki kristni og væri ,,óboðleg“ eins og þar segir.

Þá kemur fram í umfjöllun blaðsins, að ,,Kwateng sjálf­ur [hafi verið] mjög mót­fall­inn sam­kyn­hneigð en í þorpi hans […], hafi viðhorf til sam­kyn­hneigðar breyst veru­lega und­an­far­in ár með þeim af­leiðing­um að marg­ir þorps­búa hafi komið út úr skápn­um […][og] op­in­berað sam­kyn­hneigð sína.“

Þá segir í greininni að þeir félagar hafi orðið fyrir áreiti vegna þessa.

Ekki hefur komið fram, að Kwateng hafi sýnt ofstækisfulla hegðun hér á landi og því er eins líklegt, þó það verði ekki fullyrt, að hann sé búinn að láta af þessari afstöðu til samkynhneigðra, líkt og svo margir aðrir.

Umfjöllun mbl.is má nálgast á tenglinum hér í upphafi þessa pistils, en hún er mun ítarlegri.

Hvers vegna maðurinn er fluttur til heimalands síns eftir sex ára veru á Íslandi, þar sem hann hefur getið sér góðan orðstír eftir því sem komið hefur fram, er óútskýrt að mati þess sem þetta ritar.

Það er sem flest rekist á annars horn við afgreiðslu á málum flóttamanna sem til landsins koma og eins og fram hefur komið, fá sumir þeirra íslenskan ríkisborgararétt með hraði og allt að því sem í ofboði sé, á meðan aðrir hrekjast inn og út um gluggann, ef svo má segja.

Skákmeistarinn góði en sérsinna, var blessunarlega sóttur til Japan og veittur ríkisborgararéttur. Furðukvendi frá Rússlandi hlutu náðina umsvifalaust, hjón frá því sama landi, hlutu ekki náð íslenskra yfirvalda og fatlaður maður og fólk hans, var flutt með valdi í lögreglufylgd úr landi, en er nú kominn til baka og samkvæmt því sem fréttst hefur, stendur til að flytja hann og fjölskyldu hans til Grikklands aftur!

Hverjar ástæðurnar eru fyrir þessu ráðslagi öllu er ekki gott að skilja, en utan frá séð er sem flest rekist á annars horn.

Færðu inn athugasemd